He's just not that into you

25. febrúar 2009 klukkan 11:53

Jæja stelpur... þá er ég á leið að austan. Er ekki bara tilvalið að skella sér í bíó?



call me...

2009????

08. febrúar 2009 klukkan 21:05
Það er sum sé komið nýtt ár dömur.. og svo það líði nú ekki alveg heill mánuður í viðbót án þess að eitthvað smáræði sé ritað hér inn þá langar mig að koma hér nokkrum orðum á "blað"!

Það eru bara 20 dagar í hrikalega skemmtilega afmælispartýið mitt!! Þannig allir verða að fara að huga að fötum til að vera í.. bara að minna ykkur á þetta ;o)
Hallbera Eiríksdóttir

Algjör draumur...

16. desember 2008 klukkan 17:06



Stelpur mig dreymdi í nótt að við vorum tjúttandi eins og ég veit ekki hvað á Pallaballi - svo hvað getur það táknað annað en brjálað stuð á næsta laugardag?!?! 

Mér líst líka alveg svakalega vel á að gera þetta að alvöru löngu og frábæru kvöldi með mat á Italiu fyrst. Væri ekki líka mál að byrja kvöldið þokkalega snemma til að ná líka að teyga hvítvínsflöskurnar á Þórsgötunni fyrst og svona... nú og að gera sig "fínni og sætari"  Wink

Hlakka alveg svakalega til að hitta ykkur elsku stelpurnar mínar... og by the way - ÉG ER ORÐIN TEXTILFORMIDLER!!!!!!

 

Halló halló:)

10. desember 2008 klukkan 20:24
Jæja kindurnar mínar... Nú fer að styttast skuggalega í próflok og skólalok hjá okkur og váá ég get ekki beðið:) Veit að Kristín og Anna voru að klára í dag og innilega til hamingju með það!!!Cool Svo nálgast jólin eins og óð fluga:)

Síðasta prófið mitt á föstudag og er þetta bara alveg að verða fínt af prófum í bili- held hreinlega að ég hafi verið búin að læra yfir mig áður en próftíðin byrjaði:S Ekki gáfulegt það...


Núna bíð ég spennt eftir einkununum og er búin að stilla dótið þannig að einkunin kemur í símann:D ég ætla greinilega ekki að missa af neinu!!

Ég ætlaði að hafa hitting heima núna á laugardagskvöldið en verð sennilega ekki heima þannig að það fellur um sjálft sig:S En við hittumst þá bara næstu helgi í staðinn- veit að Palli bíður spenntur eftir okkur á HáskóladjamminuYell

Ég segi bara góða ferð Katý og Halla gangi þér vel í síðustu prófunum...

Kveðja ykkur Huldís í stuðiCool
Kvenfélagiđ

Afmćlisbarn dagsins

22. nóvember 2008 klukkan 19:53
Katrín Danadrottning á afmæli í dag..

Hér Katrín í núverandi heimabæ sínum Viborg en hún fer nú bráðum að koma heim til Íslands - kominn tími til ;o)

Katrín wants you!


Elsku Katrín okkar, innilega til hamingju með afmælið, vonandi naustu hans sem allra best með systir og co.. nú og Palla ;o)
Svo hlökkum við til að sjá þig eftir tæpan mánuð og sérstaklega hlökkum við til að tjútta með þér á Palla ;o)

kv. Kvenfélagið
Hallbera Eiríksdóttir

Nóvember

06. nóvember 2008 klukkan 18:28
Svona í tilefni af því að það er svoooooooooooooooo langt síðan einhver ritaði eitthvað hérna inn ákvað ég að gefa ykkur lesefni.. svona af því það er líka ekkert að gera í vinnunni!

Ekki að það sé eitthvað að frétta eða ég hafi frá einhverju skemmtilegu að segja.. nema við Kristín Halla ætlum að skella okkur á heilbrigðisvísindasviðsdjamm (vá hvað þetta var langt orð) á morgun og skemmta okkur fram á nótt! Cool

En ég heyrði einn góðan um daginn:
Kona labbaði fram hjá 17 ljóshærðum karlmönnum sem stóðu í hnapp fyrir framan Sjallann á Akureyri. "Hvað eruð þið að gera hérna úti í kuldanum?"
spurði konan. "Tja," svaraði einn maðurinn, "við verðum að vera 18 til að komast inn"... Tongue out

Annars gangi ykkur öllum rosa vel að læra.. ég er allavega að drukkna.. ég get ekki látið frá mér eina bók, verst að það er ekki skólabók Innocent og svo eru endalaus verkefni sem maður getur einhvern veginn ekki byrjað á.. og þegar maður klárar loksins eitt eru 3 í viðbót búin að bætast við.. úff púff!
Hallbera Eiríksdóttir

Stórafmćli

04. október 2008 klukkan 13:12
Þá er runnið upp enn eitt kvenfélagsafmælið, í þetta skiptið er það hún Sigga okkar sem er 25 ára í dag  Koss  Kvenfélagið óskar henni að sjálfsögðu hjartanlega til hamingju með daginn, og þú ert vinsamlegast beðin að njóta hans frá a-ö.  Stórt smúss frá okkur í kvenfélaginu með eftirfarandi myndum frá liðnum tímum!!


Þvílíka sæta myndin... Sigga okkar með frumburðinn Brosandi



Og svo á jólagleði á klettinum... hvar annarsstaðar?!?!


Og svo eina með Dóra á Hóli í lokin...


Eigðu góðan afmælisdag bjútí...  Kvenfélagið


Katý

Meeee...

18. september 2008 klukkan 09:46
Það er Sauðamessa 4. okt, ætlaði að ath stemminguna í hópum fyrir þeim merka viðburð.. þ.e. það er náttúrulega merkilegast að það sé eitthvað um að vera í Borgarnesinu Glottandi

Það er ekki komin nein dagskrá ennþá en hún er væntanleg á http://saudamessa.is fljótlega.

Kristín Halla er að vinna þessa helgi Gráta Og ég var að fatta að líklega var ég búin að lofa að vinna fyrir stelpu sem er að fara til útlanda Öskrandi en ég reyni að redda mér útúr því ef það er brjáluð stemming fyrir að mæta á svæðið. Það er náttúrulega alltaf gaman í nesinu á Sauðamessu.. allavega hefur verið það þessi tvö skipti sem hún hefur verið haldin.

Endilega tjáið ykkur um þennan viðburð..

Ég ætla að halda áfram að fylgjast með í verðbréfum og læra um fjármál, eigið fé, skuldafé og núvirði greiðslufé.. allt tengt kindum að sjálfsögðu.

kv.Halla bralla
Hallbera Eiríksdóttir

Haustiđ

29. ágúst 2008 klukkan 12:00
.::Sælar stúlkur::.

Ætlaði bara að taka púlsinn á ykkur svona í upphafi haustsins, eruð þið ekki bara ferskar fyrir veturinn? Ég finn það á mér að þetta verður góður vetur ekki satt Glottandi

Nú er Huldís náttla að byrja í hjúkkunni þannig að við erum orðnar 3 talsins með aðsetur hér í Eirberginu, ekki slæmt það Hlæjandi  Anna Margrét reyndar þessa stundina örugglega í flugvél á leiðinni í sólina, eða komin jafnvel.. sendu okkur nú smá sól til Íslands Anna mín
Svalur

Vona að þið hafið það gott kellur...

Kv. Krillan - sem nennir ekki að fylgjast með í tíma Óákveðinn

ps. er eitthvað plan um helgina??

Kristín Halla

Kvenfélagiđ bloggar frá Viborg city

15. ágúst 2008 klukkan 01:36

Elsku Krillan okkar á 24 ára afmæli í dag og heldur upp á daginn í Viborg... innan um danska pilta  Ullandi  Ekki amalegt það... hún er í þann mund að kenna honum Søren Christensen íslensku... jájájá það er ekki slæm stemmningin hér á Sjáló.



Afmælisgestirnir trúðu ekki að stúlkan væri deginum eldri en 21 árs... og við sam-kvenfélagskonur gleðjumst mjög yfir þeim áfanga, að verða 21 árs ár eftir ár  Svalur  Við hrópum þess vegna allar í kór.... TIL HAMINGJU MEÐ 21 ÁRS AFMÆLIÐ ELSKU KRILLAN OKKAR, OG VERTU ALLTAF JAFN UNG OG ÓMÓTSTÆÐILEG (SINGLE AND FABULOUS)
Húrra húrra húrra húrraaaaaaaaaaaa......

Könnun

Hvert á ađ fara um helgina?

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...